Þroskasálfræði: Vitsmunaþroski, geðtengsl og skapgerð
Enviado por Anónimo y clasificado en Otras materias
Escrito el en
islandés con un tamaño de 3,02 KB
Piaget: Kenning um vitsmunaþroska
- Skynhreyfistig: Skynjun og hreyfingar.
- Foraðgerðastig: Táknræn hugsun og sjálflægni.
- Hlutbundið stig: Hugsun um raunverulega og áþreifanlega hluti.
- Stig formlegra aðgerða: Abstrakt hugsun og rökhugsun.
Málþroski
Noam Chomsky: Börn fæðast með meðfædda málhæfni.
Skapgerðarsnið
Almenn skapgerðareinkenni
- Sjálfstjórn: Stjórn á tilfinningum, athygli og geta til að róa sig niður.
- Neikvætt skaplyndi: Tilhneiging til að upplifa ótta, reiði og vanlíðan.
- Félagsleg virkni: Sækist eftir félagslegum samskiptum.
Skapgerðarsnið samkvæmt Thomas & Chess
- Auðveld skapgerð: Róleg og aðlagast vel.
- Erfið skapgerð: Pirruð og aðlagast illa.
- Seintekin skapgerð: Hlédræg og sein að aðlagast.
- Blandað: Einkenni úr fleiri en einni gerð.
Geðtengsl (John Bowlby)
Varanleg tilfinningatengsl sem móta persónuleika og tengsl við aðra.
Formgerðir geðtengsla
- Flóttaleg: Virðist sama þegar foreldri fer.
- Trygg: Foreldri er örugg höfn.
- Mótþróafull: Óörugg og ósamræmd viðbrögð.
- Ruglingsleg: Óvissa um viðbrögð.
Þættir sem hafa áhrif
Trygg geðtengsl tengjast oft næmum foreldrum, góðri samstillingu, lítilli streitu og auðveldri skapgerð barns. Ótrygg geðtengsl tengjast oft neikvæðum uppeldisháttum, vanrækslu, streitu foreldra, vímuefnaneyslu eða erfiðri skapgerð barns.
Myndun geðtengsla eftir aldri
- 0–6 vikna: Sækja eftir félagsskap.
- 6 vikna – 8 mánaða: Geðtengsl byrja að myndast við lykilpersónur.
- 8 mánaða – 2 ára: Sterk geðtengsl myndast.
- 2–6 ára: Leita eftir umhyggju og vernd.
- 6–12 ára: Gagnkvæmni í tengslum.
- 12–18 ára: Sterk tengsl við vini og félaga.
- 18 ára+: Rómantísk tengsl myndast.
Stýrifærni
Geta til að skipuleggja hugarstarf, stjórna hugsun og hegðun (minni, hömlun og sveigjanleiki).
- Hefur áhrif á: Gagnrýna hugsun, ígrundaðar ákvarðanir, að standast freistingar og viðhalda athygli.
- Byggir á: Valkvæðri athygli, tilfinningastjórn, minnisvitund (hugsun um minnið) og hugvitund (hugsun um hugsun).
Félagsleg hegðun
Umhyggja, hjálpsemi og góðvild án eigin ávinnings. Byggist á samkennd og innri hvötum. Tengist uppeldi sem hjálpar börnum að skilja eigin tilfinningar.